Blaðið sem bíður vorsins | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Blaðið sem bíður vorsins

Fyrsta ljóðlína:Heillaður gekk ég um Hvítársíðu
bls.297
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Heillaður gekk ég um Hvítársíðu
heimsótti Kirkjuból.
Undir kvöldhimni kraup ég glaður
Kyssti mig sól.
2.
Álfar kvöldsins í bæjarbrekku
breyttu um tjald og svip.
Settu þeir fram út hugarins höfnum
hin hvítu skip.
3.
Síðar undir óttunnar himni
álfarnir léku sér.
Kristallinn í hylnum í Hvítá
var handa mér.
4.
Minn guð og þinn lét skyn og skilning
skyggna það breyska hold.
Kynslóðir gengnar sá ég í svipinn:
Saltkorn í mold.
5.
Landsvísur heyrði ég settar saman
söngva um grös og vor.
Þó eru hér í Hvítársíðu
hríðarspor.
6.
Enn er ég luktur innan hringsins
óvissan byrgir sýn
veit þó að blað úr vetrarskógi
vitjar mín.
7.
Það er blaðið sem bíður vorsins
og búið er töfrum þeim
sem opna þrátt fyrir böl og bresti
batnandi heim.
22.
nóv. 1977