Þrá | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þrá

Fyrsta ljóðlína:Ó, komdu fagra Fljótamær
bls.98
Viðm.ártal:≈ 0
1.Ó, komdu fagra Fljótamær
er fjöllin kveður sól.
Við skulum ganga um græna jörð
og gróinn Stífluhól.
Það er svo ljúft í lyngi fjalls
að liggja um næturstund
og heyra ástarhjalið þitt
mitt hjartakæra sprund.
2.
Og þegar allt er orðið hljótt
í örmum þig ég vef
og leggjum saman kinn við kinn
ég kossa þigg og gef
og leikum þetta laumuspil
sem lítið nefna má.
Það er svo ljúft og yndisblítt
að unna, njóta og þrá.
3.
Og þegar sól úr sævi rís
og signir fjöll og dal
við göngum saman glöð í lund
úr gullnum blómasal
og stígum léttan hól af hól
heim í okkar tjöld
og minningin um mæta nótt
í meira en varir öld.