Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Kveðja til dalsins | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)
1.
Frá sem hind um leiti og laut
lék um rinda fjallsins
meðan yndis æsku naut
upp við tinda dalsins.
2.
Gæfan reikul gerðist þar
gleðikveikjum eyddi.
Æsku veiku vonirnar
veruleikinn deyddi.
3.
Ama bundin út við sjó
auma grund hér byggi.
Finnst þér undur, á mér þó
illa stundum liggi.
- - -
4.
Er vorsins blíða varmadís
vekur lýð af dvala,
ein ég tíðum una kýs
uppi í hlíðum dala.
5.
Þá átti eg föng við fönn og ís
fjarri söngnum þýða.
Anda löngum ljóðadís
lyfti úr þröng og kvíða.