Þorsteinn Erlingsson | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þorsteinn Erlingsson

Fyrsta ljóðlína:Fegins ljómi í lítum skín
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1900
1.
Fegins ljómi í lítum skín
laufskrúð ómar flétta
og nú hljómar harpan þín
hjartans blómin spretta.
2.
Himni breytir, hafi og storð
hverju er leit ég yfir
það hið heita unaðsorð
að ég veit þú lifir.
3.
Söm er snilldin, samur ert
með söngvamilda hreiminn
Hvað ég vildi geta gert
glaðan tryllda heiminn.
4.
Senda auð ég veröld vil
sem velkist snauð á kili
enginn dauði að sé til
aðeins nauð í bili.