Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Samtíningur - á leið til skráningar.Fyrsta ljóðlína:Lausavísur á leið á stallinn sinn
Höfundur:Höfundur óviss
Viðm.ártal:≈ 0
Konráð prófessor Gíslason eignar Stefáni amtmanni Þórarinssyni þessa bögu. Gerð í gamni um Björn bróður hans.
heimskan rík í heila flaut hér á landi bjó hann. Kálfur sigldi, kom út naut kusi lifði og dó hann. SÞ SigHalld/Vísnasafn Hannes Pálsson frá Undirfelli gat ekki eða vildi ekki verða samferða Jóni Pálmasyni og Friðfinni Ólafssyni í kosningaleiðangri í Húnaþingi, festi hann bíl sinn og ók síðan á eftir hinum. Þá varð eftirfarandi vísa til og sennilega eiga Friðfinnur og Jón báðir þátt í henni: Áður kallaði ´ann okkur skríl illur var þessi fundur nú eltir Hannes okkar bíl eins og svangur hundur. Himinn blánar öðrum yfir alltaf gránar minn annan smánar allt sem lifir eltir lánið hinn. Kr. Einarsson og Heiðrekur Guðmundsson Á fyrstu dögum Vísis gaf Þorsteinn Erlingsson þennan fyrripart til botnunar: Bravó Ísland, þar kom það þú hefur Vísi fengið Þótt hann færi ei stórt af stað strax mun hækka gengið. Karl Magnússon læknir? Framsókn ýtir fleyi á mar fegrar grýtinguna flibbar hvítir fela þar fleira en skítmennskuna. Jón Pálmason Svart á hvítu sýnir Pá svo ég hlýt að muna: Furðu nýtinn er hann á íhalds skítmennskuna. Vald. Benónýsson Skagfirðingur ljóðaði á Húnvetning: Ef þú ferð að ögra mér öxin brátt á háls þinn ríður. Húnv.: Þó í bili óvíst er hvor á þann lim er skaðann bíður. Ung kona frá Ak., er gekk undir nafninu Kleópatra, fluttist til Húsavíkur og setti upp verslunina Elfu við hlið Vald, Hólm Hallstað og var aðeins þunnt þil á milli búðanna. Þá kvað Helgi Hálfdanarson: Danir kúra í kaldri mold kóngar fyrri alda. Kleópatra klædd í hold komin er til valda. Vald. Hólm svarar: Sumir grafa úr gleymsku og mold girndir fyrri alda. Kleópatra og hennar hold hugarangri valda. HH svarar aftur: Drottning Nílar unir ein elfarniði fínum lét sér nægja hjartahrein hólm í ósi sínum. Bjarni Ásgeirsson var að leita að Þorsteini Dalaþingmanni í húskynnum Alþingis og spurði: Hefurðu séð þrjótinn þann Þorstein Dalasýslumann kom ég víða en hvergi fann karlhelvítisandskotann? Ragnar Ásgeirsson svaraði: Ekki blóta, Bjarni minn bíddu hérna, vinurinn kannski að hann komi inn karlhelvítisandskotinn. Á leið til Þingvalla í þoku: Ég vil líta björgin blá búðir Snorra goða þú skalt víkja, þoka grá Þingvöll vil ég skoða. Friðrik Hansen Gamla Skjaldbreið láttu lyft leiðum þokuslæðum þær hafa fleiri fagrar skipt fyrir Hansen klæðum. Karl Friðriksson Björn Axfjörð kvað um sölumann á Akureyri: Sá er lipur sölumaður samviskan ei þjáir hann. Sig. Halldórsson botnaði: Viðmótsléttur, lygahraður laginn að blekkja náungann. Á einni síðu í safni Sigurðar eru eftirfarandi 5 snjallar vísur og tildrög: 1. Helga Halldórsdóttir á Dagverðará sendi Helga Hjörvar þessa stöku: En hvað skemmta ætíð mér ævintýrin fögur. Helgi minn, ég þakka þér þínar góður sögur. 2. Einhver varpaði fram þeirri spurningu hvort veðurspáin hans Jóns Eyþórssonar mundi nú rætast í dag. SÁ á Raufarhöfn orti þá: Mikill liggur munur í maður og Guð að vera. Annar getur upp á því hvað ætli hinn að gera. 3. Theresía Guðmundsson var lengi veðurstofustjóri. Oft sögðu menn: Hvað syngur nú í Theresíu? Ólína Jónasdóttir kvað: Ennþá lægð við landið er lítið um sumarhlýju. Hreint er eins og heyrist mér hrollur í Theresíu. 4. Þegar þetta var bjó Ólína Jónasdóttir í litlu koti á Sauðárkróki. Einhverju sinni þurfti hún að fá lagtækan mann til að dytta að húsi sínu. Það er tilefni eftirfarandi vísu: Mér finnst eitt og annað bresta á það sem ég frekast kaus. En eitthvað með því allra versta er að vera karlmannslaus. 5. Þorsteinn Ö. Stephensen var á yngri árum og raunar langt fram eftir starfsaldri sínum útvarpsþulur. Þar, er eins og á leiksviði, manna vinsælastur. Það kemur fram í þessari vísu: Ekki er klukkan orðin sjö ennþá hefur birtan völdin. Mikið þrái ég Þorstein Ö þegar fer að skyggja á kvöldin. Ókunnur orti: Dýrðarkarlinn Helgi Hjörvar hér í lífsins táradal konur vorar ætíð örvar eins og líka vera skal. Jóhann Bárðarson kvað svo um vísur Páls Ólafssonar: Dýrar veigar mærðarmáls munu teygast lengi vængjafleygar vísur Páls verðfast eiga gengi. Ólafur í Forsæludal kvað: Þrautaleiðir þokast fjær þýða er greið í spori myndi seiða svona blær sál til heiða á vori. Guðríður í Austurhlíð kvað þessa fögru vísu til móður sinnar, Kristínar Guðmundsdóttir þá hún varð áttræð: Glöð í máli, mild á brá máttur sálar kyndir orkubál sem brenna á beiskju, tál og syndir. Hæstaréttarlögmaðurinn P.S.P. skrifar og segir: Til Skúla Ben, er Helgarvísur féllu niður 9. apr. 1983, viku fyrir sumarmál: Vetrar snarpa veðrið dvín víkur karp úr hugum manna. Nú er harpan þögnuð þín þekkti garpur kviðlinganna. Björn á Löngumýri var um tíma kaupfélagsstjóri á Skagaströnd. Um hann kvað Lúðvík Kemp tvíræða vísu: Bátnum snýr og beitir vörn bæði skýr og vitur Ævintýra-óskabjörn undir stýri situr. Árni Jónsson frá Múla var talinn með skemmtilegustu mönnum og hagmæltur vel. Um Jónas frá Hriflu kvað hann: Ef að Jónas er þér kær ættirðu hann að kynna. Hann er orðinn elliær ofan á það fyrra. Eitt sinn var Hermann Jónasson forsætisráðherra á ferð um Suðurland í bifreið ásamt fleiri þekktum mönnum þar á meðal Agli í Sigtúnum, sem oft var kallaður harðstjórinn. Þeir voru við skál. Seinfarið var svo kvölda tók og skyggja áður en þeir næðu leiðarenda. Þá dofnaði yfir hinu fríða föruneyti og varð þögn í bílnum. Þá kvað Hermann: Harðstjórinn er heldur fár hann er orðinn fullur. Ég er eftir, aleinn klár innan um þessar bullur. Þá lifnuðu félagar Hermanns heldur en ekki við og sögðu að hann færi með lygi, hann væri sjálfur fyllstur. Þá sagði Hermann: Þetta´ eru ýkjur, því er ver þetta´ er næstum lygi. Þetta kom af sjálfu sér svona á fylliríi. Helgarvísur Jón Benediktsson frá Aðalbóli svaraði Höskuldi Einarssyni(Ljúga stela myrða menn): Þótt þú trúir illu enn upp á Húnvetninga finnurðu aldrei meiri menn meðal Þingeyinga. Loki Laufeyjarson sem segist vera Húnvetningur sendi þættinum þessa vísu: Þingeyinga æ og sí angra mun og þvinga að aldrei fá þeir fetað í fótspor Húnvetninga. Magnús Teitsson Í morgun ég vaknaði viður eitt voðalegt timburbrak. En í dag hef ég drukkið mig niður í dag er ég fyrirtak. Helgarvísur 17/7 ´82 Margrét Rögnvaldsdóttir frá Réttarholti í Skagafirði er nú orðin 93 ára. Hún dvelst á Dvalarheimili aldraðra. Til hennar kom nýlega önnur vistkona og kvartaði sáran yfir leiðindum og tilbreytingarleysi. Margrét svaraði: Göngum vér hér grýttan veg gegnum markalínu. Ævin reynist auðnutreg á elliskeiði sínu. Skapast sorgir sælu úr sumar morgna vinur. Er á torgin skellur skúr skýjaborgin hrynur. Margrét Ólafsdóttir yrkir þessa snjöllu vísu í tilefni af vísu RGSn. um Reykjavík(Geng ég einn hin glæstu torg). Guttormur J Gutt. kvað: Ég átti ekki stélfrakka í eigu til en aðeins þelstakk og hettu að etja við helblakkan hríðarbyl á heimsins Melrakkasléttu. Helgarvísur(úr 44. þætti) auglýsa eftir höfundi: Húnvetningar hafa enn harðar tekið sennur. Björn og Skjónu muna menn meðan Blanda rennur. Hvísur 41. þáttur Frétt að norðan segir Skuggi: Pálmann ber í höndum hátt Húnvetninga goðinn. Framsóknar í fjósi brátt fór að hallast stoðin. 33. þáttur Ingibjörg hin húnvetnska sendir þessar stöku: Hér er mikill djöfladans drjúgum hækkar vara. Ekki sér til auðnulands og enginn kann að spara. Sig. Þórarinsson hafði sagt um fyrsta Kröflugosið: Þetta er ekki gos, þetta er drullusletta. Viðbrögð sumra vekja bros vá þó sé að frétta „Þetta er ekki þingeyskt gos þetta er drullusletta.„RR og Hýsum amann ekki lengi óðinn tama kveðum vér Ljóða saman stillum strengi stutt því gaman lífið er. RR Helgarvísur – líkl. allar húnvetnskar: Grímur Gíslason kvað á ferðalagi: Bjart er heiðið, blítt þú sérð brunað skeiðið, lengist saga. Engum leiðist, löng var ferð. Lánið greiðist slíka daga. Indíana Albertsdóttir frá Neðstabæ: Gistir lengi grönnum hjá Gróu-fengin saga en til að hengja hatt sinn á hefur hún engan snaga. Þorsteinn Ásgrímsson Veðrafjandinn frá mér snýr fjármannsvanda lýkur. Sunnanandi óskahlýr yfir landið strýkur. Kristján Sigurðsson frá Hvammi: Laðar þráin ljúf og heit líf í „Aðalstræti“. Strákarnir í stelpuleik stíga léttum fæti. Þormóður Pálsson: Út á tímans ólguflaum æskan burtu´ er flotin. Liggja bak við gamlan glaum glösin týnd og brotin. Þórarinn Þorleifsson: Geðið fangar gamanið grös í anga haga. Golan vanga gælir við góða, langa daga. Bjarni Jónsson frá Gröf: Þó að ellin andann slævi ennþá hef ég dágóð spil. Lífið vakir alla ævi yfir því að vera til. Valdimar K Benónýsson: Enn í hlóðum eldar braka ylja þjóðinni. – Þar á móðurmálið spaka málm í glóðinni. áður komið á vísnavef/Húnaflói með orðamun Kveðið við lát Teits Björnssonar á Kringlu. Vísan er af sumum eignuð Þórarni Jónssyni alþm. á Hjaltabakka. Gröfin dáinn geymir Teit glöggt oss tjáir saga. Heimurinn má því hefja leit hrygg sér fá að naga. Sr. Guðlaugur Guðmundsson á Stað í Steingrímsfirði dó í Reykjavík 1931. Sagt er að þetta sé síðasta vísa hans: Frjáls er andinn ferðbúinn. Förina lítið heftir. Bráðum sinar, bein og skinn í bólinu skil ég eftir. Barði Friðriksson lögfræðingur: Þegar á vorin vakna strá og vatnið klýfur sporður og ilminn finna úr moldu má mig fer að langa norður. Einar Sverrisson viðskiptafr. frá Hvammi í Norðurárdal lét þættinum stöku í té sem hann sagði vera eftir Odd A. Sigurjónsson: Raufarstein er rétt að fá og rammlega hepsu úr stáli hengja þetta um hálsinn á Höllustaða-Páli. Eftir fund um Blönduvirkjun: Mörgum verður vegur háll við svo bar í þetta sinn ef Höllustaða- hefur Páll hlaupið af sér þingmanninn. (ók. kannski HJV) Helgarvísur: Ingibjörg hin húnvetnska hefur bréf sitt á þessum vísum: Ambögurnar efalaust oft má Skúli laga. Nálgast óðum hrímkalt haust hlýja strengi Braga. Oft ég hnoða lakan leir lítt hann tollir saman. Úr því verður aldrei meir en ónýtt stundargaman. Aðalbjörn Úlfarsson frá Vattarnesi v/Reyðarfjörð kvað í tilefni af núverandi raunum Sjálfstæðisflokksins: Riðlast fylking römm og há í reiði er Gunnar sokkinn. Gunnar Thor með glaða brá gerði klof á flokkinn. Fara góðir fyrir þjóð fram er róður gerður. Landsins móðir, ljúf og góð leikhússtjóri verður. Vilhjálmar frá Gauksmýri Hún. Býsna marga hildi háð hefur Gunnar kallinn. Ef að betur að er gáð er nú Geiri fallinn. Eftirfarandi vísa er eftir konu í Húnaþingi: Fyrst mér sá er unni ég ung ekki reyndist betur táls á leið, í taumi þung tek ég þig ekki, Pétur. Alltaf verður Blanda best byggðastólpinn traustur. En sumir veðja á haltan hest á heiðunum lengst í austur. S.H. Jón á Akri æ með stakri elju berst fyrir okri og eymdarhokri uns hann ferst. Úr þingmannarímu 1938 100 kosningavísur úr öllum kjördæmum eftir Brand bílstjóra: V-Hún: Örlög þeirra eru hörð sem ýfa Skúla fiður alla kveður undir jörð og ennþá lengra niður. A-Hún Hér er mikill höfðingi hvergi risnu sparar æðstaráð á alþingi öðrum fram úr skarar. Ekki dugar Hafsteinn hót hér er Jóni að mæta. Brosandi með blíðuhót býður hann til sæta. Skag. Steingrímur og Staðar-Jón stangast hér af vana. Það er orðin algeng sjón og ekkert nýtt við hana. |