Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Á sumardaginn fyrsta 1961Fyrsta ljóðlína:Selfossbúar hér sjáið þið standa
Höfundur:Lovísa Þórðardóttir Selfossi
Heimild:Saga Kenfélags Selfoss í 70 ár. bls.93
Viðm.ártal:≈ 1950
1. Selfossbúar, hér sjáið þið standasaman örlitla stund vetur og sumar í vænum klæðum viðkvæm er þeirra lund því aðeins þau hittast á ári hverju augnablik tvö í senn en fyrir oss gerðu að fara hingað fögnum því konur og menn.
2. Þau standa hér aðeins við stundarfjórðungog stefna síðan á braut. Vetur hvílist til veturnátta hann vefur sitt hvíta skraut en sumarið yfir landið líður sem ljúfur og þýður blær. Vaknar þá allt af værum blundi og vorinu móti hlær.
3. Kveðju ég flyt ykkur kæru gestirfrá kvenfélaginu hér. Það vill ykkur þakka vinsemd alla er vetur burtu fer. Það veit að þið skiljið viðleitni þess til að vinna börnum í hag. Gleðilegt sumar, góðar stundir og góða skemmtun í dag. AthugagreinarÁ sömu síðu er ljósrit af dagskrá sumardagsins fyrsta 1961, undirritað af Lovísu Þórðardóttur f.h. nefndar:
Skemmtun haldin í Selfossbíó kl. 2 og kl. 5 til ágóða fyrir leikvallasjóð. Skemmtiatriði voru sem hér segir:
1. Sumar og Vetur á sviði
2. prestur: Lárus Halldórsson flytur erindi
3. Morgunleikfimi
4. Amma gamla(syngur)
5. Hljómsveit Óskars Guðm.+
6. Amma gamla(saga)
7. Austurlenskur dans
8. Amma gamla(gamanvísur sungnar)
9. Sjónleikur(dóttir skýjakonungsins)Alls unnu að skemmtuninni 63 manns. Nær öll vinna gefin og samkomuhúsið lánað endurgjaldslaust. Inn kom fyrir selda aðgöngumiða kr. 9.231 Kostnaður var kr. 207.50 Mismunur kr. 9.023.50 Merki seld fyrir kr. 2.280 Ágóði alls kr. 11.303.50 |