Liðsinni | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Liðsinni

Fyrsta ljóðlína:Blöð og útvarp flytja okkur fregnir
bls.83
Viðm.ártal:≈ 1975
Blöð og útvarp flytja okkur fregnir
af þjóðarmorðum
og nú ber öllum skylda til hluttekningar

svo við rífum úr okkur hjörtun
heingjum þau utaná okkur
einsog heiðursmerki
og reikum úti góða stund

áður en við leggjumst til svefns
á afglöpum okkar
og snúum okkur heilir og óskiptir
að draumlífinu.