Á eyri vaðs | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Á eyri vaðs

Fyrsta ljóðlína:Áin kemur upp á heiðum
Viðm.ártal:≈ 2000
Mottó:
1.
Sú er bónin eftir ein
ei má henni leyna
ofan yfir Breiðfjörðs bein
breiddu stöku eina.
Sigurður Breiðfjörð
2.
Ef ég stend á eyri vaðs
ofar fjörs á línu
skal ég kögglum kaplataðs
kasta að leiði þínu.
Bólu-Hjálmar
1.
Áin kemur upp á heiðum
fossar af brúnum í gljúfri þröngu
líður straumlygn hjá eyri vaðs
þagnar og hverfur að ósi
lognaldan salta ber hana í djúpið.
2.
Eftir vökunótt á Stað
við skin miðnætursólar
Sigtýs öl og guðaveigar
skilja leiðir við ána.
Tíminn er svartur fugl við sjónhring.
3.
Eins og árstraumurinn tær
sem aðskilur bakka tvo
rennur óttan blá í einum farvegi
þessa einu nótt
þessa einu vökunótt á Stað.
4.
Líkt og köggull kaplataðs
sem áin fleytir til hafs
þannig hverfur í dúpið
nótt ein á Stað. Dagur rennur
og draumur verður að steini.
5.
Skáld sem stendur á eyri vaðs
og nemur nið árinnar
sér dagana streyma að ósi
og aldirnar sökkva í sæ.
Hvar er trú þín, græna jörð?
6.
Upptök árinnar:
Einn dropi á heiðum.
Elfurin rauða: Beiskur bikar
Kvasis dreyri í hjarta
og – ein vökunótt á Stað.
7.
Í upphafi var orðið
og vötnin á heiðum.
Yfir hvelfist himinn hár.
Áin: Stundaglas draumsins.
Orðið: Blómkróna á bakka.
8.
Milli heiðarinnar sem geymir
dýragrasið bláa
og hafsins sem dregur til sín
árstraumin tæra:
Orðsins fylgd og vornótt á Stað.
9.
Komir þú á Grænlands grund
eða gistir Akrahrepp
gefðu vatninu gleði þína
vindinum sorg þína.
Sem gára á vatni er veraldar hylli.
10.
Gangir þú að Hrútafjarðará
gjörir ferð svo langa
horfðu þá á ljósbrotið
gult, rautt, grænt, blátt
og óskir þínar munu rætast í djúpinu.
11.
Vatnið sem rennur af heiðum
eftir hvössu grjóti
orðið sem kviknar af eldi
rauðrar miðnætursólar:
Daggardropar á steinum tveim.
12.
Sem glitský yfir jökli hvelfdum
er gleði horfinna stunda.
Liðin er vökunótt yfir brjóstbirtu
og Boðnar miði höfgum.
Leiðir skilur á eyri vaðs.
13.
Við árinnar endalausa nið
undir vorhimni víðum
kveður skáldið greppinn rímna
og bjarmaland næturinnar.
Foldar duft fýkur í gengin spor.