Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Svo er nú þaðFyrsta ljóðlína:Ég lítill drengur man það fyrst til mín
Höfundur:Skúli Guðmundsson alþingismaður
Heimild:Einherji. bls.18/12 1969
Viðm.ártal:≈ 1975
1. Ég lítill drengur man það fyrst til mínhvað móðir lét sér annt um börnin sín. Ég man að það var mikið sem hún spann á meðan faðir útistörfin vann.
2. Þau voru bæði góð og gættu að mér.Svo gáfu þau mér lítið stafrófskver. Og árin liðu. Bættist fet við fet. Oft fagurt veður. Stundum komu hret.
3. Því Ijós og skugga lífið ber með séren löngum brosti hamingjan við mér. Þar skipti miklu yndiskvenna ást sem aldrei mér á lífsins ferli brást.
4. Ég hitti fleiri merka og góða mennog mæti þeim á göngu minni enn. Og margir þeirra hafa lagt mér lið sem Ijúft er mér að þakka og kannast við.
5. En hvað um mig? Ég gerði fáum gottvar grár í lund og iðkaði tíðum spott. Svo glöpin mörg og gönuskeiðin mín þau geymir, Pétur, stóra bókin þín.
6. Í hana er skrifað hvað sem fyrir berog hún er örugg bókfærslan hjá þér. Ég hygg að bráðum opnist opnan mín því innan stundar ber mig heim til þín.
7. Sé það á degi, drep ég höggin þrjúá dyrnar hjá þér. Alltaf hlustar þú. En sé þá nótt, ég guða á gluggann þinn að gömlum sið og bíð við þröskuldinn.
8. Og svo? Og svo? En hér skal nefna hittað hæstur drottinn verndi landið mitt. Sk. G. Janúar 1969 Athugagreinar
Skúli Guðmundsson, alþingism., tengdafaðir minn og vinur, bað mig um að koma Ijóðlínum þessum til birtingar fyrir sig, ef hann yrði kvaddur burt héðan án fyrirvara. Þá hafði hann fengið aðkenningu sjúkleika þess, er nú hefur lagt hann að velli. Eitt af mörgum einkennum hans var það, að hann virtist oft hafa hugboð um atburði, er engan grunaði, en áttu sér nokkurn aðdraganda. Hafsteinn Guðmundsson
timarit.is: http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=335654&pageId=5291142&lang=is&q=EINHERJI%20EINHERJI |