Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
FylgdarmaðurFyrsta ljóðlína:Hann var eins og haustbylur harður í augum
Höfundur:Indriði G. Þorsteinsson
Heimild:Dagbók um veginn. bls.14-15
Viðm.ártal:≈ 1975
1. Hann var eins og haustbylur harður í augumog hrjúf var hans rödd. Hestur hver dauður og hrollur í öræfataugum. Þó var Kaldakvísl kvödd.
2. Skarðasúgurinn rist hafði manninn rúnumer reið hann um fjöll. Þrjátíu hesta hann rak að rannsóknum búnum norður í sandbyl og mjöll.
3. Úr Fljótshverfi hélt hann og allt til Eyjafjarðarí einum hvínandi fleng. Þá var ei hugsað hvort hestur næði til jarðar. Þá var súgur af dreng.
4. Á Sóleyjarhöfðavöðum, vikrum og sprengisöndumvelktist hann dægrin löng. Og stökkið buldi á auðnum og öræfalöndum svo grundin söng.
5. Er heimreiðir duna undan hestum langferðalagaog hleypt er í tún þá fylgir gestum af öræfum gustmikil saga um Sigurð frá Brún.
6. Þar var hann konungur hests og alls heimsins.Hlýjuðu gæðingsspor. Hvort þeysir hann enn um útsæ bláfjallageimsins? Maður með seiglu og þor. |