Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Hugumkæra HúnaþingFyrsta ljóðlína:Hérað inn af Húnaflóa
Höfundur:Sveinbjörn Benónýsson Vestmannaeyjum
bls.275-277
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Ættjarðarkvæði
1. Hérað inn af Húnaflóahugarsjónin litið fær engi, tún og akra frjóa allt mót sól og vori hlær. Opnast dalir inn til heiða augað heillar tilbreyting. Skín á jöklaskalla breiða skraut í víðum fjallahring.
2. Þar er hérað hetjusagnahörputóna Bragamáls góðra hesta, göfgra bragna glæstra kvenna, ástabáls. Æskuvagga menntamanna mestu, sem að land vort ól. Allt hið góða, allt hið sanna á í faðmi þínum skjól.
3. Man ég þig frá æskuárumer eg geymdi sauðahjörð. Gróðri feginn gleðitárum grét ég við þinn blómasvörð vors er gestir saman sungu sumarljóðin mild og hlý ort af Guði á alheimstungu eilífðgömul, sífellt ný.
4. Morgna þinna man eg stundirminningin er björt og hrein glóðu sólargeisla-mundir gæddu lífi jafnvel stein. Vorsins blær frá himni heiðum hlýr og léttur fór um grund elfur fram í bugðum breiðum beindu leið á ægis fund.
5. Gróður reis á grund og hjöllumgljúfrabúar nótt sem dag niðr´ í þröngum hamrahöllum hressilegan kváðu brag. Þá var líf í þínum æðum þrungið krafti hjartað sló alls staðar á öllum svæðum upp til jökla fram að sjó.
6. Vertu ávallt æskusveitinöllum börnum þínum skjól meðan brekkur, blómaleitin brosa móti vori og sól meðan röðull geislaglæðum gyllir bláan fjallahring meðan daggir drjúpa af hæðum Drottinn blessi Húnaþing. |