Austurfararvísur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Austurfararvísur

Fyrsta ljóðlína:Klettafjöll
bls.29-36
Viðm.ártal:≈ 1975
1.
Klettafjöll
kostajarðir og fiskivötn
dansandi tíbrá
dunandi sjór.
Austfirðir
auðnir og dalalönd:
málverk á þili
máttug og blíð.
2.
Elfarniður
öræfabirta
ánganþeyr.
Vallhólmar
víðigrundir
veðramót.
Hábúngur
holtsmúlar
hvítanes.
Jökuldalir
jötunheimar
járnsíður.
Skrapatúngur
skessudrangar
skagatær.
Lómatjarnir
leyningshólar
lyklafell.
Álfaborgir
útnyrðingsstaðir
ögurvíkur.
Álftamýrar
uxahryggir
arnarbæli.
Furðustrandir
fljótshlíðar
fjallaskörð:
Austfirðir
við árdegisljós
og aftanskin.
3.
Bakkagerði
í Borgarfirði
breiðir yfir sig
blauta þoku.
Dyrfjöll
dyljast augum
og Desjarmýri
dúki þykkum vefst.
4.
Höfðar gánga
í hrannir fram
virki og kastalar
sem vættir gæta
flughamrar
og fuglabyggðir.
Brim og veður
bifa þeim hvergi.
5.
Fljótsdalshérað
fleygir um lendar sér
fagurgrænni skikkju.
Standa á höfði
í straumi lagar
stuðlabergin fornu.
Örlagastund:
Allt nýtt
og eilíft þó.
6.
Seyðisfjörður
sefur
í sælum draumi.
Vaknar
vakinn
af virkum degi.
Sofnar
sefur
í svartalogni.
7.
Blítt er í dölum
er blikar sól.
Brosandi dafna
blóm og grös
og bregða á leik
ef blæ andar
tárhreinum
um tún og eingi.
8.
Neskaupstaður
og Norðfjörður
reifast um kvöld
roða bleikum
en léttar bárur
leiðast í dans
systurlega
á sævi bláum.
9.
Sveitarsæla
á suðufjörðum
fullsprottin tún
fallegur búsmali
og hlaðin fley
til hafnar skríða
ála hyldjúpa
með afla góðan.
Sveitasæla
og sunnanátt
um Hornafjörð
milli hafs og jökla.
Frjóar moldir
og farsælar yrkjur
fela bændum
fjársjóð á hendur.
Sveitasæla
og sumarblíða
nótt björt
um Nes og Mýrar
og Suðursveit
sæng reidd
dúnmjúk
sem drottningu hæfir.
10.
Ferðalángur
fellur í stafi
og fagnandi spyr:
Hefur gert
hagari smiður
hærri dyr?
11.
Aldrei sá ég
yfirbragðsmeiri
öræfageim.
Ökum vagni
okkar vestur
áfram – heim.