Frá Grænlandi | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Frá Grænlandi

Fyrsta ljóðlína:Komir þú á Grænlands grund
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Komir þú á Grænlands grund
ef gerir ferð svo langa,
þér vil eg kenna að þekkja sprund
sem þar á buxum ganga.
2.
Allar hafa þær hárið nett
af hvirfli í topp umsnúið,
vafið fast svo fari slétt;
fallega um er búið.
3.
Konur silki bera bönd
blá um toppinn fríða
láttu þær fyrir líf og önd
lagsi, kyrrar bíða.
4.
Ef krakka hafa vífin væn
veitt að lausum hætti
hafa bönd um hárið græn;
horfa á þessar mætti.
5.
Þær sem eftir liðinn leik
lengi ekkjur búa
böndin hafa um hárið bleik,
heiminum frá sér snúa.
6.
Hárauð bönd um hár á sér
hreinar vefja píkur
en þessi litur, því er ver,
þreifanlega svíkur.


Athugagreinar

Vísurnar er einnig á Braga/vefsíðu með orðamun.