Stökur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Stökur

Fyrsta ljóðlína:Ég er eins og veröld vill
bls.46-47
Viðm.ártal:≈ 1825
1.
Ég er eins og veröld vill
velta, kátur, hljóður
þegar við mig er hún ill
ekki´ er ég heldur góður.
2.
Ef að við mig hún er hlý
og hugann eitthvað gleður
er ég léttur eins og ský
sem ýtir af sólu veður.
3.
Við dálítið vinarhót
sem vesld mína bæti
hvorki vald á hönd né fót
hef ég þá fyrir kæti.
4.
En hún ber mér oftast rammt
svo af því til ég kenni
ekki hef ég ennþá samt
auðmýkt mig fyrir henni.
5.
Þannig hennar röddin rám
rymur við mig snauðan:
„Hneigðu þig og krjúptu á knjám
ég kreisti þig annars dauðan.“
6.
Vefst ég eins og veika strá
sem vindar yfir hvína
rifnar ekki rótum frá
ró þó megi týna.
7.
Þá heimur um dyrnar hrindir mér
hattinum af ég lyfti
og til hinna hnatta fer
holl eru mér þau skipti.