Kom líknin heims | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kom líknin heims

Fyrsta ljóðlína:Kom líknin heims, þú hljóða nótt
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Sálmar
1.
Kom líknin heims, þú hljóða nótt
er hægum blundi felur drótt
og vefur mjúkum mundum.
Við dagsins lok ég lofa þig
þú lagðir blessun yfir mig
á ótal ævistundum.
2.
Sjá, árin renna eins og ský
og einmana í heimi eg bý
hann gleymir einum, – öllum.
En þú sest mildust mér við hlið
og mælir blítt og veitir frið
frá heimsins hraða og köllum.
3.
Kom líknin heims, þú hljóða nótt!
Hinn horfni dagur leið svo skjótt
en samt mig sækir þreyta.
Ó veit mér hvíld og höfga á brá,
uns helga dagsbrún má ég sjá
á landi, er allir leita.


Athugagreinar

Sálmur hefur borist manna milli í ljósritum, undirritað er Sr. Sigurjón Guðjónsson þýddi og umorti. Lagið er eftir Christian Lahusen * 1886