Siglufjörður | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Siglufjörður

Fyrsta ljóðlína:Nú er síld á Siglufirði
bls.104-105
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Nú er síld á Siglufirði
sem er milljóna virði.
Þar má græða. Því fer ég nú
þangað til að bjarga mér.
2.
Krónur fást þar fimm til níu
fyrir tímann; yfir tíu
stundum. Þar er hægt að hafa
hundrað krónur minnst á dag.
3.
Þar er fólk ei undir aga
allt er frjálst um nótt sem daga.
Þar er dans á hverju kvöldi
konjak nóg og brennivín.
4.
Þar er stríð um konu hverja
keppst um fast að sækja og verja.
Þá er hníf að hálsi otað
hnefar krepptir dansa´ á nös.
5.
Leyfist frjálsa lífið ekki
lögreglan er sett í hlekki.
Semjist ei við sýslumanninn
setja menn hann út í horn.
6.
Fleygið orfum, karlar, konur
kastið hrífum; dóttir, sonur,
flýið kotin, kveðjið baslið
komið öll á Siglufjörð!