Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Fréttabréf úr Reykjavík – Haustið 1905Fyrsta ljóðlína:Héðan er svo fjarska margt í fréttum núna
Höfundur:Þorsteinn Gíslason
Heimild:Dægurflugur. bls.27-29
Viðm.ártal:≈ 1900
1. Héðan er svo fjarska margt í fréttum núnaog fyrst er það, að ég hef tekið andatrúna og sver: það er svo satt og rétt sem segjast kunni sagt frá henni í Ísu og líka´ í Fjallkonunni. Þeir Einar og Björn eru uppáhöld mín. – Nema Indriði kunni að villa þeim sýn.
2. Ísafoldar-Björn er allra manna mesturmeiri trúarfrömuður en nokkur prestur. Og þó hann hérna allar valdavonir svíki til valda brýst hann þá í dauðans skuggaríki. Hann stundum við sjálfan sig segir að von: Je suis l´emoereur Napóleón.
3. Einar kvartar undan miklu ofsóknonumog svo því, hve fáir vilja trúa honum. Huggun er: Við hæðnisglósur heimskra lýða hafa stærstu andans garpar fyrr mátt stríða. En haldi slíku áfram, er hætta á því að holdið hans gufi upp í reyk eða ský.
4. Við Ingólf eru góðir menn, þeir Bjarni og Bensiog berjast fyrir sjálfstæði með skopi´ og glensi. Og dómarinn er hamrammur og hetja´ í riti en haldið að hann muni kafna´ í lærdómsviti. Og þegar hann dettur, hann dómari Jón, þá dæmir hann steinana´ á veginum flón.
5. Hannes verður settur af, að sögn nú bráðum.Sá kvað vilja fjötra allt með dönskum þráðum. Svo er líka vísindalegt viðtal bannað við þá dauðu, jafnvel loftið sjálft er bannað! Þetta var samþykkt á þinginu nú. Þjóðin er alveg á gagnstæðri trú.
6. Hér er stöng eins há og tindar hæstu fjallaheyrir þegar suður í löndum Bretar kalla. Ráðherrann vill ekki láta stöng þá standa. Stjórnin er þar komin í þann mesta vanda. Gat var í lögin, þeir gáðu´ ekki að því gat, sem að stöngin kemst vel fyrir í.
7. Þingmennirnir allir saman eiga´ að faraút til Hafnar. Þar á ekki neitt að spara halda veislur, hengja á þá heiðurskrossa hnýta tryggðabönd við gylltra skála fossa. Hann Skúli´ á að dansa við drottninguna þá og dannebrogsorðu á brjóstið að fá. |