Forn rökkursöngur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Forn rökkursöngur

Fyrsta ljóðlína:Bóndinn Eiríkur brytjar smjör
bls.II bls. 92
Viðm.ártal:≈ 1800
Flokkur:Daglegt amstur
Bóndinn Eiríkur brytjar mör
bryður hún Guðrún kjöt og smjör
Ingunn við tuggum tekur
Kolbeinn litli á kodda svaf
tók Katrín lykkju prjónum af
hjá Imbu lyppan lekur.

2.
Lyppu spann Bjarni löngum trúr
lagði Jón orðin dönsku úr
Bargþór var band að tvinna
við þráðarspunann Þórdís sat
þagað Sigga við rokkinn gat
gekk Fúsi um gólfið svinna.