Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
HúnaflóavísurFyrsta ljóðlína:Löngum heillar ferðalang fjarlægðin blá
Höfundur:Ragnar Böðvarsson
Heimild:Munnleg heimild. Viðm.ártal:≈ 2000
1. Löngum heillar ferðalang fjarlægðin bláförum nú um Húnaþing grösugt og lokkandi. Vakna minni útlegðar öræfum frá ógnarsaga rifjast upp Þrístöpum hjá. Margur er hér snöggur að snúa ræðu í brag snilldarvísur Skáld-Rósu lifa enn í dag. Lækjarvísur Gísla má löngum vítt um byggðir heyra. Ljúflega fimmundarstemmurnar hljóma við.
2. Kóparnir á skerjunum skemmta sér viðskvamp í glaðri öldu við lábarða steinana Féð er dreift um heiðanna sólvermda svið Söngfugl tekur undir við lækjarins nið. Laxinn móti straumunum stökkin iðkar létt stóðið glatt í haganum æfir langan sprett. Yst á Vatnsdalsfjallinu Öxlin gnæfir yfir Þingið. Ósköp er gaman að ferðast um Húnaþing. AthugagreinarRagnar orti vísurnar vorið 2012 og tók þátt í ferð Söngkórs Hraungerðisprestakalls norður í Húnaver þar sem haldin var Gíslavaka Ólafssonar frá Eiríksstöðum. Ljóðið má syngja undir lagi eftir Evert Taube eins og Svífur yfir Esjunni. |