Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
JólanóttFyrsta ljóðlína:Önn var á alla vegu
Höfundur:Þóra Jónsdóttir frá Kirkjubæ Hún.
bls.305
Viðm.ártal:≈ 1950
1. Önn var á alla vegu,umferðargnýr og þröng. En hljómur frá Drottins húsi helgi yfir bæinn söng.
2. Nú þaggar alkyrr óttaysinn fjær og nær. Fellur að moldar feldi flosmjúkur jólasnær.
3. Myndi nú helgi hlynnaað hugarró vökumanns, vekja bál af þeim vonarneista, er vakir í draumum hans.
4. Ljá honum létta vængitil langflugs um víðan geim. Sýna svið og vegi að sótt verði Binna heim.
5. Ljós hallast kollur að líni,og lukt er hin skýra brá. Hvort sér hún í svifi drauma söknuð mömmu og þrá.
6. Lítur hún ljósar myndirí ljúfri svefnsins ró bera sér yl og bjarma frá bernskunnar arinstó.
7. Nemur hún nærri vangafrá norðri léttan þey í hljóðrar nætur húmi hvísla: Gleym mér ei.
8. Stillt blikar jólastjarna.Stafar helgi og frið. Vekur mildi í manna hjörtum og minning um horfið svið. |