Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Erindi frá Rifi á SkagaFyrsta ljóðlína:Hér í Rifi heyrðist lestur
Höfundur:Höfundur ókunnur
Heimild:Gömul kynni. bls.78
Viðm.ártal:≈ 1750
Hér í Rifi heyrðist lestur
helgum sabbatsdegi á. Runólfur var ráðinn prestur. Rauluðu karlar undir þá. Sextán voru seggir þar, sætur fimm til skemmtunar: Helga, Guðrún, mæt Málfríður, Margrét líka og Sigríður. Tveir Magnúsar, tveir Guðmundar, trúi ég sæti lestri hjá. Oft réð Finnur að því grunda, en Benedikt hlýddi á. Illugi, Pálus, Ólafur, Ívar, Jón og Þórbergur, Jóhannes með Árna enti, einatt Sveinn þar Gísla benti. Athugagreinar
Bókarhöfundur, Ingunn á Kornsá, telur að höfundur erindanna sé Magnús Arason langalangafi hennar, en hann og Finnur sonur hans réru frá Hafnabúðum og talað sé þar um fólk það sem var með þeim feðgum og bjó í sömu búð og þeir, eða var að minnsta kosti við húslestur hjá þeim, því að eigi voru húslestrar vanræktir þar í verinu.
|