Að kasta orðunum milli horna | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Að kasta orðunum milli horna

Fyrsta ljóðlína:Vér komum hingað úr ýmsum áttum
bls.2009 í Hótel Laka Efri-Vík
Viðm.ártal:≈ 2000
Vér komum hingað úr ýmsum áttum
og eiga munum í góðum sáttum
leiki saman við ljóð og vísur.
– Hér leyfist engum að draga ýsur. –
En sopið skal vel á Suttungsmiði.
Það sæmir betur því vaska liði
sem hér vill una við íþrótt forna
orðunum kasta milli horna
svo loftið af stuðla tónum titri
og töfrar rímsins við eyra sitri.
Og hér skal gleði og gaman ríkja
en gremja og þunglyndi burtu víkja
því oss er nauðsyn að eiga stundum
með öðrum dvalir á gleðifundum.
Vér skulum því öllu angri gleyma
en óðfluga láta gleðina streyma
um sérhverja æð og svo að hún megi
í sífellu streyma uns lýsir af degi
vér yrkjum, kveðum og saman syngjum
og södd og ánægð vér glösum klingjum.
Því njóta skal þess sem er borið á borðin
og búinn til veislu er salurinn orðinn.
Og senn mun oss vaxa þrek og þróttur.
– Og þá vil ég Margréti Einarsdóttur
til stjórnar á þessu þingi kalla
og þess vil ég biðja vætti alla
að hér megi allir yndis njóta
og ánægju saman hljóta.


Athugagreinar

Landsmót hagyrðinga, Bragaþing hið tuttugasta og fyrsta var haldið í Landbrotinu að kvöldi 29 ágúst 2009. Fulltrúi Sunnlendinga RB setti það með ofanskráðri ræðu – rímaðri