Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Á heiðinniFyrsta ljóðlína:Sumarkvöldin kalla
Höfundur:Einar Guðlaugsson
Heimild:Húnavaka, ársrit USAH. bls.1992 bls. 40-41
Viðm.ártal:≈ 1975
1. Sumarkvöldin kallakyrrð og friður seiðir. Óbyggðina alla allar fjærstu leiðir helst ég kysi að kanna hverfa að djúpum friði burt frá býlum manna borgarglaum og niði.
2. Sumarkvöldin seiðasannra ævintýra held ég þá til heiða heim í ríki dýra. Heyrast rámir rómar refir eru að gagga. Svanir sælt og lómar sér á tjörnum vagga.
3. Inni í urðarbakkaeirir minkur hljóður. Sígur húm í slakka sofnar lamb hjá móður. Unir inni í lundi önd hjá sínum maka sé ég fram á sundi silungana vaka.
4. Yfir á Eiríksjökulárdags-sunna flæðir. Hún í gylltan hökul hjúpar svartar hæðir. Himinn hreinn og fagur hljómar af fuglakvaki enda er aftur dagur inni á Hnúfabaki. |