Heimþrá | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Heimþrá

Fyrsta ljóðlína:Ég get ekki sofið
bls.47
Viðm.ártal:≈ 1975
Ég get ekki sofið, sumarnóttin er ung
og silkimjúk þoka líður um tún og engi.
Heimþráin sækir huga minn, heit og þung,
hér hef ég dvalið og starfað svo óralengi.

Ég finn hvernig óþreyjan æðir um hverja taug,
því í ósköpunum stend ég ekki á fætur,
því fylgi ég ekki læknum leiðina heim
og legg mig í kvöld við afdalakofans rætur