Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Sjötugum gefinn foliFyrsta ljóðlína:Vinur knár, þinn aldur er
Höfundur:Sturla Friðriksson
Heimild:Hjónasvipur. bls.65-67
Viðm.ártal:≈ 1975
1. Vinur knár, þinn aldur erekkert hár, þótt sýni sjötíu ár, því sæmir þér sumbl í kláravíni.
2. Illa verkað er mitt blóðog í kverkum tregi, er með herkjum yrki ljóð á svo merkum degi.
3. Þitt er ærið útlit gott,oss er nær að votta, er þér færum vinarvott vorn á snærisspotta.
4. Ef þú fiktar eitthvað við,er þar kvikt á færi. Óðar hnykkt og engin bið aftur rykkt í snæri.
5. Skylt er oss að ansa því,á það hnoss að benda, ef þú trossu tekur í, tollir hross á enda.
6. Enginn neitar, að vor jórað því leyti er hálfur, að vinir heita hálfum bjór, en hálfan veitir ´ann sjálfur.
7. Eru gefnar gáfur best,gætir stefnu vega. Virðist efni í heilan hest held ég nefnilega.
8. Verður hár, svo herma spár,hlýtur nára stinna, þegar klárinn kraftafár kemst til ára sinni.
9. Engu líkist æskukappyndisríka vinsins. Ekki svíkur heldur happ Hindisvíkurkynsins.
10. Fremst í hófi vina var,vel í hófi reifur, er hann hóf og ótt til bar átta hófa og skeifur.
11. Ef hann volar við þinn barm,víktu mola af brauði. Aldrei þola ætti harm ungi folinn rauði.
12. Okkur grunar í þann mund,er hér dunar gaman að þið munið marga stund mega una saman. |