Sálmur 350 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sálmur 350

Fyrsta ljóðlína:Ó, ást, sem faðmar allt! Í þér
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Ó, ást, sem faðmar allt! Í þér
minn andi þreyttur hvílir sig,
þér fús ég offra öllu hér,
í undradjúp þitt varpa mér.
Þín miskunn lífgar mig.
2.
Ó, fagra lífsins ljós, er skín
og lýsir mér í gleði og þraut,
mitt veika skar það deyr og dvín,
ó, Drottinn minn, ég flý til þín,
í dagsins skæra skaut.
3.
Ó, gleði’, er skín á götu manns
í gegnum lífsins sorgarský.
Hinn skúradimmi skýjafans
er skreyttur litum regnbogans
og sólin sést á ný.
4.
Ó, ég vil elska Kristi kross,
er kraft og sigur veitir mér.
Að engu met ég heimsins hnoss,
því Herrann Jesús gefur oss
það líf, sem eilíft er.