Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Vatnsdalsbragur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)

Vatnsdalsbragur

Fyrsta ljóðlína:Það er gaman í Vatnsdal að vera,
bls.1. árg. bls. 17
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Það er gaman í Vatnsdal að vera,
þegar vorsólin glampandi skín.
Úr lífsins áhyggjum gleðistund gera,
glæstar konur og freyðandi vín.
2.
Það er fjör yfir frjálslyndum meyjum
undir fjallanna svipmiklu brún.
Það berst angan frá ornuðum heyjum
út um engjar og nýslegin tún.
3.
Hér er náttúran frjósöm og fögur,
hér er friður í smálækjarhvamm.
Undir bökkum með blómjurta kögur,
streymir berglindin syngjandi fram.
4.
Undir hlíðunum stórbýlin standa,
glæstar steinhallir, nýtísku lag.
Gömul höfuðból, vaxin þeim vanda,
að vernda fornhelgan menningarbrag.
5.
Horfnum svipmyndum seilist ég eftir.
Hér er sögufrægð gömul og ný.
Hérna börðust þeir Glámur og Grettir.
Hér er getið um Skinnpilsu dý.