Ferskeytlan | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ferskeytlan

Fyrsta ljóðlína:Þetta votta þeir sem best
bls.90
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Þetta votta þeir sem best
þjálfa tal og muna,
að þeir hafi hátta mest
heiðrað ferskeytluna.
2.
Er hún þjóðleg, alltaf ný,
áþekk skrýddri brúði,
stakan rétta, reifuð í
ríms og stuðla skrúði.
3.
Hugðnæmt efni, háttur dýr,
hagleik birti taman.
Frumleg hugsun, frjáls og skýr,
fara þyrfti saman.
4.
Máls og stuðla málminn í
meitluð snilldar staka,
orðsins list er eilíf – ný,
æ af gnægð að taka!
–––––––
Málið slétta, ljúft og létt,
laust við bletti, hjóm og galla.
Staka, réttum stuðlum sett,
stundum glettin, hrífur alla.