það gerir ekkert til | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

það gerir ekkert til

Fyrsta ljóðlína:það gerir ekkert til
bls.79
Viðm.ártal:≈ 1975
það gerir ekkert til
þóttú deyir í miðri vísu
ef þú nærð að klára hana

Það skiptir engu máli
þóttú hafir það aldrei alla leið
ef þú kemst á leiðarenda

Og það má einu gilda
þóttú hafir klúðrar ástinni
ef þú hefur bara elskað


Athugagreinar

Sögumaðurinn skrifar ljóðið eftir Jónmundi gamla „og eftir að ég hafði skrifað upp vísurnar hans, þá bað hann mig eiga þær. Þetta eru reyndar nokkuð skringilegar vísur og það er ekkert rím í þeim, en ég er ekki viss hvort ég heyrði allt rétt. Eigi að síður þótti okkur gaman að þeim þegar ég las þær fyrir fólkið niðri. Mér þykir vænt um að hann hafi gefið mér þessar vísur. Kannski hafa slæðst einhverjar stafsetningarvillur með, en alltént tók ég þær svona niður: