Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
MinjastefFyrsta ljóðlína:Þegar mér umhorf er
Höfundur:Sigurður Jónsson frá Brún
Heimild:Rætur og mura. bls.10
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1950
1. Þegar mér umhorf erömurlegt, dimmt og kalt aftur í ferð ég fer farið þó sé nú allt. Yrki mér aftur glaum unun og hrossaþef rifja upp tök á taum tauta fram minjastef. 2. Kliða við eyru ennymjandi hófaslög hlátrar og hýrir menn hlæjandi kvæðalög. Skiptir um útsýn æ. Óðar en vísan þver ný tún og nýjan bæ nemur hvert auga sér. 3. Gatan við grundarlokgengur í bláan mel. Gýs upp sem fjaðrafok fljúgandi steinaél. Tvísýn er lengi leið. Loks tekur götu jór svífur fram sigurskeið svipmikill, skrefastór. 4. Öðrum fer kapp í kinnkverkanna þrengja bug hefja upp hnakka sinn hækka á tölti flug leika við léttan taum lyfta sem móðurkné bera í björtum draum beint inn í sæluvé. 5. Hljóðnar um hófaglammHestar við áarbug stíga nú stilltar fram stikla og breyta hug. Áð er og blökkum beitt brosað og metist ögn aftur sem áður þreytt eftir það hvíld og þögn. |