Sandfok kvatt | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sandfok kvatt

Fyrsta ljóðlína:Þú hefir fylgt mér langa leið
bls.7
Viðm.ártal:≈ 0

Skýringar

Sandfok var fyrri ljóðabók höfundar
1.
Þú hefir fylgt mér langa leið
um löturbraut og hlemmiskeið
um jökulsvell og sæ.
Þér hefi´ ég sagt hvað sá eg nýtt
og sumt var ljótt, en annað frítt.
En þú? Þú þagðir æ.
2.
Slíkt kemur þeim, sem eigin orð
eins eru ljúf og matarborð
og hús og hlýleg flík.
Mér ætti að vera vel til þín.
Ó, veslings litla bókin mín
brátt skilur vini vík.
3.
Þú átt að taka upp annan sið:
Frá öllu því, sem geymdum við
að segja um borg og bæ.
Og þér mun ljóst, hver þökk þér ber
því þú skalt verða´ að sjálfum mér
en aðrir eins og þú.