Vegalaus | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vegalaus

Fyrsta ljóðlína:Nú kitlar litla lóu undir væng
bls.72
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1950
Flokkur:Skáldsþankar
1.
Nú kitlar litla lóu undir væng
og langar til að þreyta flugið heim.
Hún þráir kalda, mjúka mosasæng
og móa sína, hreiðurskál í þeim
því vorið er á gangi norður geim.
2.
Og bráðum skautar suðurfjöllum sól
og sundur rennur snjór og hjarn og ís
og sérhver laut er bráðum hreiðurból
og börnum lofts er heima fæða vís.
Og unga getur varið vorgrænt hrís.
3.
Ó, guð, að mætti mig og heimför hrjá
að hefði ég sem lóan vonarstað
svolítinn blett, sem þyrði ég að þrá.