Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
Á gangi í leiðindum | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (1291)
Afmæliskvæði  (11)
Ástarljóð  (10)
barnagælur  (1)
Biblíuljóð  (3)
Eftirmæli  (13)
Ferðavísur  (3)
Gamankvæði  (18)
Háðkvæði  (8)
Heilræði  (1)
Hestavísur  (2)
Hindisvík  (2)
Húnaþing  (8)
Húnvetningar  (7)
Jóðmæli  (1)
Jólaljóð  (3)
Kappakvæði  (1)
Lífsspeki  (2)
Ljóðabréf  (6)
Náttúruljóð  (48)
Oddi  (1)
Rímur  (1)
Sagnakvæði  (1)
Sálmar  (2)
Sálmur  (2)
Skáldsþankar  (44)
Strandir  (2)
Söguljóð  (11)
Söngvamál  (1)
Tíðavísur  (1)
Tregaljóð  (4)
Þululjóð  (1)
Ævikvæði  (2)

Á gangi í leiðindum

Fyrsta ljóðlína:Hér geng ég með hrærðu hjarta
bls.27
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hér eg geng með hrærðu hjarta
himnafaðir legg mér lið
sorg er þung í sinni særðu
æ, sálu minni veittu frið.
Heyr mig faðir, heyr mig faðir.
Ó, heyr í Jesú nafni eg bið.
2.
Ein í útlegð ein eg kvarta
einum fyrir Jesú þér
lát þitt náðar ljósið bjarta
lýsa mér í heimi hér.
Tendra hjá mér trú í hjarta
eg til þín mæni, vert hjá mér.
3.
Væg mér faðir, væg mér faðir
vægðu synda gjöldum mín
væg mér fyrir vininn Jesús
vægðu mér fyrir hans beisku pín.
Veit mér kraft að vaka og biðja
mig veika leiði höndin þín.