Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
Örlög GrettisFyrsta ljóðlína:Gretti reyndist voðinn vís
Höfundur:Grímur Lárusson
Heimild:Munnleg heimild. Viðm.ártal:≈ 0
1. Gretti reyndist voðinn vísvar þó hraustur talinn. Örlaganna illa dís er nú víða falin. 2. Grettir í Vatnsdal greiddi förGlám nú skyldi vega. Öll voru Grettis ævikjör eftir þakin trega. 3. Grettir í fletið gekk um kvöldgæfa hans var fjarri. Draugs voru augu dimm og köld dáleiddu hann nærri. 4. Glámur í feldinn greip nú fastGretti vildi út drífa. Góð voru átök, gaflinn brast grimmir feldinn rífa. 5. Heyrðist draugaröddin rámvið rjáfrið hausinn úfinn. Ef að þú vilt glíma við Glám gæfa þín er búin. 6. Upp þá Grettir ólmur sprattei því vildi trúa. Af Glámi vildi hausinn hratt helst í snatri kljúfa. 7. Glíman varð svo grimm og hörðgnast í húsum öllum. Rjáfrið tættist, rifnaði jörð rugguðu björg í fjöllum. 8. Gengin burt er gæfa þínGlámur mælti hraður. Alltaf munu augu mín á þér hvíla maður. 9. Gláms í augu glóði skjóttþá Glám hann hafði vegið. Eftir þetta einn um nótt aldrei gat hann legið. 10. Þá féll á nóttin döpur, dimmdraugsi granir bretti. Eftir þetta augu grimm alltaf fylgdu Gretti. |