Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (1291)
Afmæliskvæði (11)
Ástarljóð (10)
Baráttukvæði (3)
barnagælur (1)
Biblíuljóð (3)
Brúðkaupsljóð (1)
Daglegt amstur (8)
Eftirmæli (13)
Ferðavísur (3)
Formannavísur (1)
Fræðsluljóð (1)
Gamankvæði (18)
Háðkvæði (8)
Hátíðaljóð (2)
Heilræði (1)
Hestavísur (2)
Hindisvík (2)
Holtavörðuheiði (3)
Húnaþing (8)
Húnvetningar (7)
Hyllingarkvæði (4)
Jóðmæli (1)
Jólaljóð (3)
Kappakvæði (1)
Lífsspeki (2)
Ljóðabréf (6)
Náttúruljóð (48)
Oddi (1)
Rímur (1)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (2)
Sálmur (2)
Skáldsþankar (44)
Strandir (2)
Söguljóð (11)
Söngvamál (1)
Tíðavísur (1)
Tregaljóð (4)
Þululjóð (1)
Ættjarðarkvæði (15)
Ævikvæði (2)
ÁstFyrsta ljóðlína:Sólin brennir nóttina
Höfundur:Sigurður Nordal prófessor
bls.254-256
Viðm.ártal:≈ 1925
Sólin brennir nóttina,
og nóttin slökkvir dag; þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag. Þú ert yndi mitt áður og eftir að dagur rís, svölun í sumarsins eldi og sólbráð á vetrarins ís. Svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt, þögn í seiðandi solli og söngur, ef allt er hljótt. Söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn, þú gafst mér jörðina og grasið og guð á himnum að vin. Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig. Ég fann ei hvað lífið var fagurt, fyrr en ég elskaði þig. Eg fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði eg að unna þér, og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfum mér. Ást mín fær aldrei fölnað, því eilíft líf mér hún gaf. Aldirnar hrynja sem öldur um endalaust tímans haf. Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið; það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin, guð – og við. 1917 |