SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Einar Þórðarson frá Skeljabrekku 1877–1963EITT LJÓÐ — FIMM LAUSAVÍSUR
Einar var sonur Þórðar Bergþórssonar og konu hans, Guðrúnar Guðmundsdóttur, á Innri-Skeljabrekku í Andakíl og þar var hann bóndi frá 1905–1926. Einar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Jónsdóttir, ættuð úr Skorradal. Hún dó árið 1908. Seinni kona hans hét Ragnheiður Jónsdóttir frá Björk í Grímsnesi. Einar flutti til Reykjavíkur árið 1926 og vann um langt skeið sem afgreiðslumaður á bensínstöð BP. Einar var hestamaður mikill. Á efri árum safnaði hann og skráði lausavísur og kveðlinga. (Sjá einkum Borgfirzkar æviskrár II, bls. 188)
Einar Þórðarson frá Skeljabrekku höfundurLjóðVor ≈ 0LausavísurLjóðagáfan listaríkMargur frár á lífsins legi Mína skrýða móður fer Út er breiða arminn sinn Yfir gengin ævispor |