Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
Hinsta kveðjanFyrsta ljóðlína:Kæri, gamli, kunni Braggi,
Höfundur:Haraldur Zophoníasson frá Jaðri
Heimild:Krosshólshlátur. bls.110
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1980
Flokkur:Tregaljóð
Skýringar
Í september 1980 var vígður nýr gangnaskáli í afréttinni og jafnframt gamli skálinn eða Bragginn kvaddur. Haraldur yrkir í orðastað gangnamanna:
Kæri, gamli, kunni Braggi,
kveðjumst nú í hinsta sinn. Orðstír þínum enginn haggi eða skerði hróður þinn. Hjá þér enginn undi leiður, ami og sút í burtu hrökk. Virðing okkar áttu og heiður, aldni vinur, ljúfa þökk. Vertu sæll, sem vel og lengi veitt hefur gangnamönnum skjól. Margir, hátt við heillagengi, héldu með þér gleðijól. Ylurinn frá yndisstundum okkar lengi hlýjar lund. Minningarnar frá þeim fundum fylgja að aldurtilastund. |