Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
Sigtryggur Árnason frá BrekkukotiFyrsta ljóðlína:Dánarfregn ....
Höfundur:Halldór Jóhannesson
Heimild:Hérsvarf 2015. Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1978
Flokkur:Minningar- og erfiljóð
Skýringar
Hið eina sem Halldór samdi án stuðla og höfuðstafa svo vitað sé.
Fannst þessi tegund kveðskapar ekki í sínum anda.......
Dánarfregn
drjúpa menn höfði fer haust um huga. Horfinn er sjónum hann sem var áður virtur af vinum góðum. Góðu dagsverki Guði og mönnum skilaðir nþú með heiðri. Vinamargur ætíð og vinafastur nafn þitt hjá niðjum geymist. Vanda allra þú vildir leysa lítil þó þú hlytir laun. Fórnfús, glaður og félagslyndur vandur að verkum öllum. Sveitungar, vinir og söngvabræður kveðja þig klökkum huga. Verður enn lengi vandfyllt skarð í kærum kunningjahópi. Far svo í friði frændi og vinur sæll til ljóssins landa. Letra ég hryggur við leiði þitt þakkar og kærleikskveðju. |