Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
Þegar Lionsmenn fengu ljósmóður á fundFyrsta ljóðlína:Margt hefur formaður mjög gott á prjónunum
Höfundur:Halldór Jóhannesson
Heimild:Hérsvarf 2015. Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1988
Flokkur:Gamankvæði
Skýringar
Bragur ortur um það þegar Lionsmenn fengu ljósmóður sem fyrirlesara á fund hjá sér.
Flutt á fundi hjá Lionsmönnum 17. febrúar 1988.
Margt hefur formaður mjög gott á prjónunum
og mæðist í flestu hjá Dalvíkur - Ljónunum. Er ljósmóður fékk til að liðsinna köllunum þá leifruðu augu og rauk upp úr sköllunum. Ljósmóðir unga var lífsglöð að vonunum lýsti af nærfærni ófrískum konunum. Meðgöngutíma, sem mörgum er framandi mikið hvað sumum, fannst þetta lamandi. Þörf reyndist kennslunni Vídeovæðingin var hér á skerminum endursýnd fæðingin. Fræðsla sem þessi mikils er metandi makráður faðirinn brauðsneiðar etandi. Fæðingin reyndist fljót bæði og rennandi flestum var útsýnið ókunnugt, spennandi. Álagið reyndist þó ýmsum of tryllandi þeir útgöngu leituðu, fundinum spillandi. Fyrstur hljóp Sveinbjörn fölur á vöngunum formælti unaði og heitustu löngunum. Jóhann fór næstur, volandi, vælandi Valdimar síðastur, næstum því skælandi. Stjórnin við háborðið titraði á taugunum tárin þau streymdu úr rauðþrútnum augunum. Baldi var stjarfur og starði á myndina honum stóð ekki á sama um holdið og syndina. Loksins þegar höfuðið birtist á barninu bilaði kjarkur hjá ritara skarninu. Ókyrrðust margir, sér akandi í stólunum andlitin mynntu á Grýlu á jólunum. Margir með spurningu voru á vörunum vissu að ekki mun standa á svörunum. Hvattir af formanni til frekari kynningar flestir sér undu við hugljúfar minningar. Hvernig er háttað með barnsgetnað byrjandi? Með bráðlæti unglings var Arngrímur spyrjandi. Um uppruna mannsins, hann löngum er leitandi ljósmóðir þungbúin svaraði neitandi. Loksins var formaður fundinum slítandi feginn að losna, boginn og snýtandi. Félagar óbreyttir frelsinu unnandi fóru að endingu, lærðir og kunnandi. |