Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
KvöldFyrsta ljóðlína:Sígur sól í ægi
Höfundur:Svana Friðbjörg Halldórsdóttir
bls.43-44
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:1994
Flokkur:Náttúruljóð
Sígur sól í ægi,
seint er nú að kveldi. Ljósir skýjalindar loga í nætureldi. Logn er yfir öllu andi dagsins flúinn. Vötn af geislum glóa gulli röðuls búin. Fuglar sem hér flugu fegurð dags að lofa höfuð fela í fiðri, flestir virðast sofa. Blóm á völlum víða vænsta skarti státa drjúpa döpur höfði daggartárum gráta. Lækir falla úr fjalli fossa mynda á stöllum. Bylur hátt á bergi blátært vatn, sem öllum steinum þvær og strýkur strá við lága bakka, syngur lag hjá lyngi ljóð í hlíðarslakka. Íslensk sólarsýn á sumarkvöldi björtu æ með frið og fögnuð fyllir okkar hjörtu. Yst við hafsins hrannir hrynur gull að lóni. Ekkert vænna veit ég en vorkvöld heima á Fróni. |