Karlaminni | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Karlaminni

Fyrsta ljóðlína:Ó, heill þér kæra karlafjöld
Viðm.ártal:≈ 1975

Skýringar

Minni karla....
Ó, heill þér kæra karlafjöld
sem konur þrá og reyna að unna.
Við hyllum ykkur hér í kvöld
og höfum uppi þakkargjöld.
Þið lifið á klárri kvennaöld
karlaríkið féll til grunna.
Ó, heill þér kæra karlafjöld,
sem konur þrá og reyna að unna.

Eiginmenn í einum hóp
ykkur vil ég segja þetta.
Áður en drottinn ykkur skóp
eflaust hefur fengið „ dóp “.
Því illilega hann á sig hljóp
okkur hefur viljað pretta.
Eiginmenn í einum hóp
ykkur vil ég segja þetta.

Margur þykirst kappinn knár
og kvensamur í hjarta sínu.
Daga og nætur, öld og ár
aldrei hefur brostið þrár.
Þótt orðinn sé af elli grár
engist hann af sárri pínu.
Margur þykist kappinn knár
og kvensamur í hjarta sínu.

Áður virtist vöxturinn
vera sjálfum Guði líkur.
En nú er bólginn búkur þinn
brosir nakinn hvirfillinn.
Hefur á kjálkum hýunginn
höndum oft um magann strýkur.
Áður virtist vöxturinn
vera sjálfum Guði líkur.

Fyrr var lundin ljúf og góð
og langir okkar gleðifundir.
Er nú horfin ástarglóð
upp á mig þú fyrrum tróð.
Urðum stundum æst og móð
eftir hlaup um mó og grundir.
Fyrr var lundin ljúf og góð
og langir okkar gleðifundir.

Oft þú gladdir geðið mitt
gagnlegur í tíma og rúmi.
Þú hefur margar stundir stytt
staðið vörð um bólið þitt.
Oft þó hafir ekki hitt
ástarsælu í næturhúmi.
Oft þú gladdir geðið mitt
gagnlegur í tíma og rúmi.

Þá skal enda þennan brag
þá skal hylla kynið sterka.
Eigum góðan gleðidag
glösum lyftum - tökum lag.
Allra drengja eflum hag
örfum þá til góðra verka.
Þá skal enda þennan brag
þá skal hylla kynið sterka.