Ég sé þig í blómskrúði | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Ég sé þig í blómskrúði

Fyrsta ljóðlína:Nú sé ég í blómskrúði Svarfaðardalinn
Höfundur:Óskar Karlsson
Viðm.ártal:≈ 1975
Nú sé ég í blómskrúði Svarfaðardalinn,
sveipaðan hlýjustu geislanna tign.
Grænkar í kyrrðinni grundin og balinn,
gleðst yfir morgninum áin svo lygn.
Þú dalur, sem hlúir að hjúunum best
og berð mér nú fegurð að sýnum,
ég veit að þér aldrei verður um megn
að verma og gleðja hvern einasta þegn
sem nærist af nægtum þínum.