Við Dalvíkurkirkju | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Við Dalvíkurkirkju

Fyrsta ljóðlína:Heima í torgi ljósið lifir
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1971
Flokkur:Bænir og vers

Skýringar

Stödd við Dalvíkurkirkju á gamlárskvöld 1971-´72.
Heima í torgi ljósið lifir
lýsir fáum allt er hljótt.
Himinn hvelfist heiður yfir
hlý er þessi fagra nótt.

Héðan sér svo vítt og víða
veit ég ekki fegri sýn.
Ei má kvarta og ekki kvíða
öll þó fari börnin mín.

Heldur þakka af hrærðum huga,
hamingju sem gefin var.
Áfram reyna enn að duga
og una sér við minningar.