Til Zóphoníasar á Hóli á 70 ára afmæli | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Til Zóphoníasar á Hóli á 70 ára afmæli

Fyrsta ljóðlína:Nú er vandi víst á höndum
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:11. febr. 1964
Flokkur:Afmæliskvæði

Skýringar

Til Zophoníasar Jónssonar bónda á Hóli í Svarfaðardal, í tilefni af sjötugs afmæli hans 11. febr. 1964
Nú er vandi víst á höndum
veika strengi á að leika,
svo að hæfi hljómi stefin,
hrynji létt í forna háttinn,
fella orð í réttar skorður,
meðan um ég er að kveða
afmælisbarnið er situr þarna.

Sittu heill, sem ennþá elli
ögrað getur mörgum betur
þó 70 ár og hrímlit hárin
heimur sjái og reyna fái.
Vitnar bezt um vit og kosti
verkin glæstu er sýna merkin,
garpur seigur gert hefur frægan
gamla Hólinn í dalsins skjóli.

Bóndans köllun ævi alla
unnað hefur og dýran spunnið
auðnuþráð á ættarláði.
Aldrei farið úr dalnum valda.
Elskað mold og frjómögn foldar,
gagn við kendar svo glæstar standa
gróðurlendur á báðar hendur.

Hefur að starfi þjóðarþörfu
þrotlaust staðið um áraraðir
nýtur þegn og þakkir hlýtur
þeirra er geta að réttu metið.
Hamingjan krýni þig og þína.
Þrjóti aldrei lukkugaldur.
Farðu heill og illri elli
ögraðu lengi, prúði drengur.