Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Flokkar
Allt (334)
Afmæliskvæði (25)
Ástarljóð (4)
Baráttukvæði (1)
Bæjavísur (6)
Bænir og vers (5)
Daglegt amstur (21)
Eftirmæli (2)
Ellikvæði (2)
Formannavísur (4)
Gamankvæði (24)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (5)
Heimsádeilur (2)
Helgikvæði (1)
Hyllingarkvæði (29)
Jólaljóð (20)
Lífsspeki (14)
Ljóðabréf (10)
Náttúruljóð (49)
Sagnakvæði (1)
Sálmar (1)
Skáldsþankar (55)
Særingar (1)
Tíðavísur (17)
Tregaljóð (8)
Vögguljóð (1)
Þululjóð (6)
Ættjarðarkvæði (9)
Ævikvæði (1)
HugdettaFyrsta ljóðlína:Gefur sýn yfir glæstan sal
Höfundur:Haraldur Zophoníasson frá Jaðri
Heimild:HérSvarf 5/2004-1. Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Hátíðaljóð
Skýringar
Ort í tilefni af flutningi Bókasafns Dalvíkur í Ráðhúsið 1986
Gefur sýn
yfir glæstan sal: bjart til beggja handa, vítt er til veggja, vel sem eru drifnir ljósum lit. Gefur sýn aðra gleðiríka, sannkallað augnayndi: stoltar, standandi í styrkum röðum, blessaðar bókahillur. Þar eru bækur í þúsunda tali, þykkar bæði og þunnar, og að efni til við allra hæfi aldinna jafnt sem ungra. Eigum eljuverk anda og handa fjölvitra fræðimanna er fyrr og síðar sýndu og báru reisn á ritvellinum. Léku að listfengi er í letur færðu handrit af hreinni snilld, út fyrir landsteina um lönd og álfur ættjarðarorðstír báru Hafa ófáir Íslendingar sér leikið að ljóðstöfum, allt frá Agli til okkar daga byrlað Bragafull. |