Tilbrigði við sonnettu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Tilbrigði við sonnettu

Lýsing: Engar sérstuðlaðar línur. Ný rímorð eru til skiptis einrím og tvírím.

Dæmi

Um sumarkvöld ég sit við kræklótt tré
og sólfarsvindar strjúka rjóða vanga.
Mig undar sífellt óræð lífsins ganga
og allt það sem hún lætur manni í té.
Ég þreyttur stari á gisnar gróðurvinjar
og gleymdar myndir birtast ein og ein.
Í minni sálu er engin hugsun hrein
og hjartakenndir tærar aðeins minjar.
Því allt var selt á lostans torgi og táls
og taumlaus girndin drekkir þínu sjálfi.
Í senn þú líkist kjölturakka og kálfi
sem kvoðan sökkvir langt upp fyrir háls.
Þér bjargar engin andakt, von né trú
því allir breyttu á sama hátt og þú.
Valdimar Tómasson: Við kræklótt tré

Ljóð undir hættinum