| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Árni Böðvarsson ætlaði að vera til altaris. Hann sat í krókbekk og hafði pyttlu sem hann hressti sig á. Þegar honum var sagt að komið væri að skriftum varð hann naumt fyrir að koma tappanum í og kvað þessa ferskeytlu og aðra til, sem er sú fyrri af tveimur, og hefst svo: Ég tók upp flöskutetrið mitt.

Skýringar

Réttvíst, Guð, er ráðið þitt,
raunum mínum hægðu.
Svona fór nú svallið mitt.
- Syndaþrælnum vægðu.