| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Sumri hrósa hlíðin fer
hjal við rósir lætur.
Dreymir ósa, ey og sker
um þær ljósu nætur.

Útsjón víða, heiða hnjúk
heiðar íðilgrænum.
Vellir skrýðast vorsins dúk.
Við skulum ríða úr bænum.