| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Glitri tál á glóð og bálum

Bls.Útvarpstíðindi 4. tb. 1949.
Glitri tál á glóð og bálum
gullnu skálanna.
Vakir sál á vegi hálum
vísna málanna.

Þá án refja hreim skal hefja
hvergi tefjandi.
Magni stefja málið vefja
mjúkt og sefjandi.

Blómagrundir, laufgir lundir
liðnu stundanna.
Glæstar hrundir, opnar undir
endurfundanna.