| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Mærin ung með hörgult hár

Bls.Satt og ýkt ll. 6.
Mærin ung með hörgult hár.
Heiðartjörn í bláum augum.
Faldasól þín fegurð stár
fyrir mínum sjónar baugum.

Aldrei gleymi ég auðgrund þér
æsku minnar vonar blómi.
Stjarna dýr í stormum mér
stýra munt að hinsta dómi.